Fimm verkefni í Grímsey hlutu styrk

Kletturinn Borgin í Grímsey.
Mynd: María H. Tryggvadóttir
Kletturinn Borgin í Grímsey.
Mynd: María H. Tryggvadóttir

Auglýst var eftir styrkumsóknum í byggðaþróunarverkefnið Glæðum Grímsey í maí 2017. Til úthlutunar voru sex milljónir króna. Frestur til að skila inn umsóknum var til 31. maí og bárust alls fimm umsóknir um styrki.

Eftir að auglýst var hækkaði Byggðastofnun þann pott sem til ráðstöfunar er um fjórar milljónir. Því eru alls tíu milljónir í pottinum að þessu sinni og er lagt til að aukin heimild verði nýtt í þessari úthlutun.

Á fundi verkefnisstjórnar sl. fimmtudag var farið yfir styrkumsóknir og þær metnar. Ákveðið var að styrkja allar umsóknirnar.

Eftirfarandi verkefni fengu styrk:

  • Sveinsstaðir Guesthouse. Umsækjandi: Arctic Trip ehf. Kr. 1.900.000.
  • Brú yfir í Borgina. Umsækjandi: Rannveig Vilhjálmsdóttir. Kr. 1.150.000.
  • Frisbígolfvöllur í Grímsey. Umsækjandi: Kiwanisklúbburinn Grímur. Kr. 1.800.000.
  • Vefsíða fyrir gistiheimilið Bása. Umsækjandi: Gistiheimilið Básar. Kr. 700.000.
  • Vistvæn orkuvinnsla í Grímsey. Umsækjnadi: JT Consulting ehf. Kr. 1.500.000.

Heildarupphæð styrkja að þessu sinni er því kr. 7.050.000. Gert er ráð fyrir að það sem eftir er af styrkfé ársins verði auglýst til úthlutunar seinna á árinu.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan