Stórgrýti flutt til Grímseyjar

Mynd: María Tryggvadóttir
Mynd: María Tryggvadóttir

Í sumar hefur verið unnið að því að flytja mikið magn af efni til Grímseyjar til að styrkja aðalhafnargarðinn í eyjunni, en hann hefur látið á sjá vegna ágangs sjávar. Samið var við verktakann Árna Helgason ehf. um að vinna stórgrýti úr grjótnámunni við Garð í Ólafsfirði. Þaðan voru teknir um 200 steinar, sem hver vóg á bilinu 7 – 12 tonn, og þeir fluttir til Grímseyjar. Flutningum á steinunum lauk nú í júlí og í haust verður búið að koma þeim fyrir í sjálfum hafnargarðinum.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan