Byggðakvóti til úthlutunar

Um helgina birti Fiskistofa auglýsingu vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2008/2009 sbr. reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa nr. 557, 25. júní 2009.

Auglýst er eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög: Grundarfjarðarbæ, Borgarfjarðarhrepp (Borgarfjörður eystri), Seyðisfjörð, Sveitarfélagið Norðurþing (Húsavík, Kópasker, Raufarhöfn) og Akureyrarbæ (Hrísey, Grímsey).

Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í hlutaðeigandi byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 671/2009 í Stjórnartíðindum.

Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar, og þar eru ofangreindur reglur einnig aðgengilegar.

Umsóknarfrestur er til og með 17. ágúst 2009.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan