jún

Sólstöðuhátíð

Sólstöðuhátíð

Sólstöðuhátíðin verður haldin í Grímsey helgina 20.-23. júní. Þessi helgi í kringum sumarsólstöður er kjörin til að heimsækja Grímsey og njóta alls þess besta sem þessi náttúruperla hefur að bjóða.

Um helgina verður boðið upp á siglingu í kringum eyjuna, fjölskylduratleik, göngu með leiðsögn, dorgveiðikeppni, bryggjumarkað, varðeld og brekkusöng. Eyþór Ingi Jónsson og Elvý Hreinsdóttir halda tónleika, myndlistarmenn vinna verk með krökkunum í eyjunni, kvennfélagið Baugur heldur sjávarréttarkvöld og loks verður slegið upp ekta dansleik að hætti heimamanna.

Allar upplýsingar um samgöngur við Grímsey er að finna hér á heimasíðunni.