Handavinnuklúbburinn Hnotan
Handavinnuklúbburinn Hnotan á hittist á mánudögum og er öllum velkomið að taka þátt, hvort sem um ræðir eitt skipti eða öll.
Handavinnuklúbburinn Hnotan á Amtsbókasafninu fer loksins aftur af stað og er öllum velkomið að taka þátt, hvort sem um ræðir eitt skipti eða öll.
Klúbburinn hittist á kaffihúsi safnsins, Fjaka, á mánudögum milli kl. 11-13. Svala Hrönn Sveinsdóttir, bókavörður, verður á staðnum með handavinnublöð og tímarit. Athugið, ekki er um kennslu í handavinnu að ræða, heldur er frekar lögð áhersla á góðan félagsskap og að hópurinn hjálpist að innbyrðis. Öll eru velkomin með prjóna, heklunálar og aðra handavinnu.
Engin þörf er á að skrá sig í hópinn, nóg er að mæta á staðinn. Nánari upplýsingar veitir Svala á netfanginu svala@amtsbok.is eða Dagný á dagny.davidsdottir@amtsbok.is
Handavinnuklúbburinn Hnotan er með Facebook hóp, öll velkomin!