Sýningaropnun og leiksýning!

Laugardaginn 3. maí verður mikið fjör á Amtsbókasafninu. Ekki láta þig vanta!

Laugardaginn 3. maí verður mikið fjör á Amtsbókasafninu. Gréta Berg opnar formlega myndlistarsýninguna sína Saga kl. 12:00 og kl. 14:00 verður leiksýningin Töfraloftbelgurinn, sem er hugsað fyrir börn á leikskólaaldri. Fyrir utan það verður eldhresst starfsfólk á svæðinu svo ykkur ætti ekki að leiðast að koma á safnið. Opið frá 11:00-16:00. Alltaf líf á Amtinu!