Viltu læra á Rafbókasafnið?

Fimmtudagana 20. júlí og 27. júlí getur þú fengið leiðsögn í notkun Rafbókasafnsins á kaffhúsi Amtsbókasafnsins, 1. hæð kl. 16-17.

Það eina sem þarf til er gilt bókasafnsskírteini hjá Amtsbókasafninu ásamt pin-númeri (sem notað er í sjálfsafgreiðsluvélar) og snjallsíma, spjaldtölvu eða tölvu. Fjölmargir efnisflokkar standa lánþegum til boða, líkt og í hefðbundnu bókasafni. Þar er að finna spennusögur, ævisögur, efni fyrir börn og margt fleira. Þannig ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Fyrst um sinn verður safnkostur einkum á ensku en vonast er til þess að íslenskir titlar bætist fljótlega við.

Vertu velkomin/n!

Fyrir þá sem vilja prufa heima þá eru frekari upplýsingar að finna hér.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan