Verðlaunaafhending Ungskálda

Verðlaunaafhending Ungskálda fer fram á Amtsbókasafninu fimmtudaginn 30. nóvember kl. 17:00.
Verðlaunaafhending Ungskálda fer fram á Amtsbókasafninu fimmtudaginn 30. nóvember kl. 17:00.

Fimmtudaginn 30. nóvember kl. 17:00, fer fram verðlaunaafhending Ungskálda á Amtsbókasafninu. 

Að verkefninu Ungskáld á Akureyri standa Amtsbókasafnið, Akureyrarstofa, Ungmenna-Húsið, MA og VMA með stuðningi Uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra. Þetta er samkeppni fólks á aldrinum 16-25 ára um best ritaða textann. Markmiðið er að veita ritlist ungs fólks meiri athygli og hvetja þau til að skapa. Veitt verða verðlaun fyrir fyrsta, annað og þriðja sæti. Verk sigurvegarans verður lesið upp auk þess sem dómnefndin verður með örstutta umfjöllum um verk sigurvegaranna þriggja. 

Allir velkomnir! 

 

 

Amtsbókasafnið er á Facebook og Instagram.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan