Útgáfuhóf: Vellankatla

Verið velkomin í útgáfuhóf Vellankötlu, annarrar ljóðabókar Þórðar Sævars Jónssonar sem áður hefur sent frá sér ljóðabókina Blágil. 

Við fögnum útgáfunni í Amtsbókasafninu á Akureyri miðvikudaginn 5. júní kl. 17:30. Léttar veigar í boði. Allir velkomnir.

Vellankatla dregur nafn sitt af vik við Þingvallavatn og er persónuleg og galsafengin elegía til íslenskrar náttúru. Ljóðmyndir Þórðar eru látlaust gluggaveður, þar sem hið stóra og ofsafengna birtist okkur hversdagslega en úr hæfilegri fjarlægð. Þórður málar myndir með næmri og nákvæmri tilfinningu fyrir staðsetningu – ekki síst orða, bila, þagna og hljóða – og nákvæmni hans daðrar við konkretisma. En Vellankatla er fyrst og fremst í samtali við dullarfullan, glitrandi raunveruleika vatnsins. Í heimi þar sem vatn er ekki aðeins blessun heldur í auknum mæli ógn, eru ljóð Þórðar, eins og vatnið sjálft, stærri og meiri en yfirborð þeirra.

Útgáfuhófið fer fram á vegum forlagsins Partus.

 

Viðburður á facebook: https://bit.ly/2YEP5P8 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan