Umhverfisvæn innpökkunarstöð í desember

Pakkaðu inn jólagjöfum á umhverfisvænan máta á Amtsbókasafninu í desember.

Vikurnar fyrir jól breytist sýningaraðstaða Amtsbókasafnsins í umhverfisvæna innpökkunarstöð. Á staðnum verða blaðsíður úr afskrifuðum bókum, könglar, greni og fleira sem hægt er að nýta í innpökkunina. Eins ef fólk lumar á jólapappír, pakkaskrauti og merkimiðum heima hjá sér sem það vill síður nota, þá má endilega koma með allt slíkt á innpökkunarstöðina. Því það sem einum þykir hallærislegt þykir öðrum töff og frumlegt.

Verið velkomin á innpökkunarstöð Amtsbókasafnsins!

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan