ÞETTA VILJA BÖRNIN SJÁ - MYNDSKREYTINGAR ÚR NÝÚTKOMNUM BARNABÓKUM - 9. - 25. ágúst 2017.
Sýningin Þetta vilja börnin sjá mun standa yfir á Amtsbókasafninu 9. til 25. ágúst. Um er að ræða farandsýningu frá Borgarbókasafni, Menningarhúsinu Gerðubergi. Á sýningunni má sjá myndskreytingar úr nýútkomnum íslenskum barnabókum en markmið sýningarinnar er að beina athyglinni að gildi myndskreytinga. Sýning þessi hefur verið haldin í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi í Reykjavík síðan árið 2002.
Myndir sýnenda eru eins fjölbreyttar og þær eru margar og gefur að líta verk bæði gamalreyndra teiknara sem fyrir löngu eru vel þekktir í heimi íslenskra barnabókmennta, sem og glæný verk myndhöfunda sem nú sýna í fyrsta sinn.
Myndskreytarar:
Sjón er sögu ríkari!