Þemaborð : eitt orð í titli

Eins og alþjóð og þið safngestirnir yndislegu vitið, þá er þemaborð á 2. hæðinni hjá okkur. Nýjasta þemað er „eitt orð í titli“.

Þarna má því finna bækur af öllum toga
sem neikvæðni úr þér soga,
og eru ekki eftir Loga ...

... eh ... greinarhöfundur datt í rímhaminn. Ég biðst afsökunar.

En að öllu gamni slepptu, þá kemur nýtt þema á um það bil mánaðarfresti og verður spennandi að sjá hvað kemur í september. Þangað til verða Kuldi, Makalaus, Kvika, Eldarnir og allar hinar bækurnar bíðandi eftir ykkur.

Sjáumst hress og kát ... í einu orði!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan