Sýning barnabókaseturs

Glæsileg sýning Barnabókaseturs opnaði á Amtsbókasafninu 3. maí 2022. Á sýningunni er hægt að taka mynd af sér með sína uppáhalds barnabók (#bestilestur), skoða gamlar barnabækur, fræðast um lestrargönguna og týndu bækurnar, fá bókamerki, sjá stuttmyndir úr Siljunni og margt fleira.

Hver er uppáhalds barnabókin þín? Komdu á afmælissýningu Barnabókaseturs á Amtsbókasafninu á Akureyri og taktu mynd af þér með eftirlætið þitt í myndakassanum. Myndum lestrarsamfélag! Mundu eftir myllumerkinu #bestilestur

Tveir skjáir eru á sýningunni. Stóri skjárinn sýnir stuttmyndir sem kepptu í myndbandakeppninni Siljan og á minni skjánum má sjá ljósmyndir þar sem barnabækur eru í fyrirrúmi.

Að neðan má sjá tvær útgáfur af myndum úr myndakassanum, en einnig er hægt að láta taka hreyfimynd (.gif). Svo er þetta sent með netpósti eða í síma. Gæti ekki verið einfaldara! Við hlökkum til að sjá ykkur öll!

 

 

 

Mynd af konu og manni með bækur í hönd       Auglýsing með mynd af fjórum manneskjum haldandi á bókum

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan