Sumarlestur ungmenna

Hvað er sumarlegra en að flatmaga í sólinni með góða bók?

Á tímabilinu 25. maí – 25. ágúst stendur Amtsbókasafnið fyrir sumarlestri fyrir 13-18 ára, þann 28. ágúst verður svo dreginn út heppinn þátttakandi sem fær að launum 10.000 króna gjafabréf í Pennanum-Eymundsson.


Fyrir hverja lesna bók má fylla út þátttökumiða þar sem skrifuð er stutt umsögn um bókina og fyrir hvaða aldur viðkomandi finnst hún henta. Þátttökumiða má nálgast á bókasafninu og skila í þartilgerðan kassa í ungmennadeildinni eða fylla út rafræna miða. Sumarlesturinn á einnig við um rafbækur og hljóðbækur og þær mega vera á öllum tungumálum, eitthvað fyrir alla.

Hér má taka þátt rafrænt.


Sumarlesturinn er samtvinnaður facebook-hópnum Bækur unga fólksins, en bókaumsagnir af þátttökumiðum gætu verið birtar í hópnum. Þátttakendur hafa þó að sjálfsögðu val um að birta umsagnir sínar naflaust þar sem einungis kemur fram aldur lesanda.

Markmið sumarlestrarátaksins er þannig þríþætt:
1. Að hvertja ungmenni til lesturs.
2. Að sjá hvaða bækur höfða til ungmenna, til þess að bókasafnið geti veitt þessum aldurshópum betri þjónustu.
3. Að gera lestur ungmenna sýnilegri og skapa samtal um bækur með því að birta umsagnir ungmenna.

 

Það er því ekki seinna vænna en að grípa bók og leggjast út í sólina og lesa.
Gleðilegan sumarlestur!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan