Ritlistakeppni Ungskálda 2019 - Úrslit

Úrslit í Ritlistakeppni Ungskálda 2019 verða kunngjörð á Amtsbókasafninu á Akureyri fimmtudaginn 5. des. kl. 17:00.

Alls bárust 35 verk í keppnina eftir 16 höfunda. Engar hömlur voru settar á hvers konar textum var skilað inn, hvorki varðandi efnistök né lengd. Þeir þurftu þó að vera á íslensku. Þriggja manna dómnefnd hefur farið yfir verkin og tilkynnir úrslit ásamt umsögn á fimmtudaginn og hljóta þrjú efstu sætin viðurkenningar og peningaverðlaun.

Verðlaunahafar lesa verk sín, tónlistaratriði,
kakó og smákökur í boði fyrir gesti.

Ungskáld er verkefni á Akureyri sem miðar að því að efla ritlist og skapandi hugsun hjá ungu fólki á aldrinum 16-25 ára.
Verkefnið er hið eina sinnar tegundar á landinu.

Í nefnd Ungskálda eru fulltrúar frá Amtsbókasafninu, Akureyrarstofu, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Menntaskólanum á Akureyri og Ungmennahúsinu í Rósenborg. 

Verkefnið er styrkt af Sóknaráætlun Norðurlands eystra
og Akureyrarbæ.

#ungskáld #akureyri #hallóakureyri

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan