Rekstur á kaffihúsi í húsnæði Amtsbókasafnsins?

Amtsbókasafnið á Akureyri leitar eftir aðila/aðilum til að annast rekstur á kaffihúsi í húsnæði Amtsbókasafnsins.

Góð aðstaða er fyrir kaffihús á fyrstu hæð Amtsbókasafnsins í Brekkugötu 17. Kaffihúsið er sjálfstæð eining en jafnframt mikilvægur hluti af bókasafninu.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með 24.08.2022 og skal tilboðum skilað rafrænt á útboðsvefnum fyrir kl. 13:00 14.09.2022.

Nánari upplýsingar um framkvæmd útboðsins eða útboðsgögn má fá með því að hafa samband við umsarekstur@akureyri.is 

Nánari upplýsingar um starfsemina veitir Hólmkell Hreinsson forstöðumaður Amtsbókasafnsins: holmkell@amtsbok.is og í síma 4601253 og 8626882 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan