Potterdagurinn mikli

Hinn árlegi Potterdagur verður haldinn hátíðlegur á Amtsbókasafninu þann 31. júlí milli kl. 15-18.

Í ár verður Harry 39 ára gamall og í tilefni þess verður heilmikið fjör! Töfrasprotaverkstæði, Quidditch-völlur og Fjölbragðabaunir Berta Bott er meðal þess sem verður í boði fyrir forvitna mugga sem vilja skyggnast inn í galdraheiminn.

Kl. 15-18 Ratleikur - Finnið galdraskepnur á 1. hæð og í kjallara bókasafnsins

Kl. 15-16 Töfradrykkjakennsla fyrir utan Amtsbókasafnið

Kl. 15-17 Búðu til þinn eigin töfrasprota! Á Orðakaffi verður töfrasprotaverkstæði að hætti Ollivanders

Kl. 16-18 Quidditch á túninu fyrir framan Amtsbókasafnið

Þá verður ýmislegt annað á boðstólum, svo sem galdraorðaleit og litablöð, bókamerkjaföndur í heimavistarlitunum - Tilheyrir þú Hufflepuff, Gryffindor, Ravenclaw eða kannski Slytherin? Þorir þú að smakka fjölbragðabaun með moldarbragði?

 

Viðburðurinn er einnig á Facebook

 

*Enginn aðgangseyrir og allir velkomnir.

*Viðburðurinn er hluti af Listasumri.

Samstarfsaðilar Listasumars eru:
Akureyrarbær, Listasafnið á Akureyri, Minjasafnið á Akureyri, Rósenborg, Gilfélagið, Sundlaug Akureyrar, Öldrunarheimilið Hlíð, Iðnaðarsafnið, Amtsbókasafnið á Akureyri, Bílaklúbbur Akureyrar, Geimstofan, myndlistarfélagið

#listasumar #akureyri #northiceland #iceland #visitakureyri #hallóakureyri #alltafgottveðuráakureyri

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan