Potterdagurinn mikli

Harry Potter, Hermione Granger og Ron Weasley í góðum gír.
Harry Potter, Hermione Granger og Ron Weasley í góðum gír.

Góðvinur barna, bókasafna (já og margra fullorðinna) sjálfur Harry Potter, á afmæli þann 31. júlí næstkomandi og verður þá 38 ára. Í tilefni dagsins verður pottþétt stuð á Amtsbókasafninu kl. 14:00-17:00

Boðið verður upp á leiki og fjör í anda HP og félaga, Quidditch og spurningakeppni (pubquiz)! Fyrir þá sem ekki vita er quidditch galdramannaíþrótt með fjórum boltum og sex háum hringlaga mörkum þar sem flogið er á kústum.

Quidditch-keppnin hefst kl. 14:30 á túninu fyrir framan Amtsbókasafnið, kústar verða á staðnum en við ábyrgjumst ekki að þeir geti flogið.

Spurningakeppnin Potterpunktur verður á Orðakaffi og hefst stundvíslega kl. 16:00. Keppt er í 2-4 manna liðum og eru vegleg verðlaun í boði fyrir fróðustu muggana!


Tilheyrir þú Hufflepuff, Gryffindor, Ravenclaw eða kannski Slytherin? Þorir þú að smakka fjöldabragðabaun með grasormabragði?


Vertu hjartanlega velkomin/n! Sjáumst!

 

Potterdagurinn mikli

Potter

 

 

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan