Plöntuskipti

Plöntuskipti munu fara fram á Amtsbókasafninu fimmtudaginn 28. maí kl. 17:00.

Öllum er velkomið að skiptast á blómum, græðlingum og fræjum. Planta á móti plöntu og svo framvegis.

Inni á safninu (á Orðakaffi) verður pláss fyrir inniblóm en úti verður hægt að vera með garðplöntur. Úti eru ekki borð en öllum er velkomið að kippa með sér tjaldborði eða álíka.

Þeir sem ekkert hafa til skiptanna eru líka velkomnir, það er aldrei að vita nema hægt sé að fá plöntu eða græðlinga á hagstæðum kjörum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan