Plokk plokk plokk og aftur plokk ...

Stóri plokkdagurinn verður haldinn næsta sunnudag, 24. apríl, og þá eru Akureyringar og landsmenn allir hvattir til að tína (plokka) rusl.

Mynd af tveimur plokktöngum

Í töluverðan tíma hefur Amtsbókasafnið boðið upp á plokktangir til útláns, 30 daga í senn og möguleiki á að framlengja ... en svo er líka hægt að skila þegar notkun er lokið og fleiri geta notið.

Gerum hreint og höfum gaman af! Hér er frétt frá vef Akureyrarbæjar um plokkdaginn!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan