Plastlaus september: Fræðsla um flokkun

Í september fer fram árvekniátakið Plastlaus september í fyrsta sinn með formlegum hætti á Akureyri. Á Amtsbókasafninu fara fram nokkrir viðburðir í tengslum við átakið, þar á meðal fræðsla um flokkun

Við vitum að pappírinn fer í pappatunnu, plastið í plasttunnu og óflokkanlegur heimilisúrgangur fer í almennt sorp. En hvert fer t.d. Swiss Miss baukurinn? Mörgum spurningum er ósvarað... 

Helgi Pálsson frá Gámaþjónustunni mun leiða áhugasama í allan sannleik um flokkun á Amtsbókasafninu mánudaginn 9. september kl. 17:00

Verið hjartanlega velkomin!

Plastlaus september.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan