Nýtt efni : nýir mynddiskar!

Kæru safngestir og velunnarar! Við erum ekki síðasti bærinn í dalnum ... en við erum eini staðurinn þar sem þið getið fengið mynddiska enn að láni hér í bæ.

- Viljið þið sjá Ethan Hawke brillera í hlutverki vonda karlsins þar sem svartur sími kemur við sögu?

- Hvað með hina frábæru ævintýra- og gamanmynd og ofurhetjumynd Thor: Love and Thunder?

- Ryan Reynolds sem bláskyrtugaurinn í gamanmyndinni Free Guy ... algjört yndi!

- Aðsóknarmesta mynd ársins 2022 í heiminum er Top Gun: Maverick. Tom Cruise í fantaformi!

Jurassic-myndunum sex lýkur með sameiningu allra aðalpersónanna í næst-aðsóknarmestu mynd ársins: Jurassic World: Dominion

- Svo eru Channing Tatum og Sandra Bullock algjörir demantar í fyndnu ævintýramyndinni The Lost City.


Sem sagt, við sjáumst hress og kát í mynddiskadeild Amtsbókasafnsins. Spurningin er: hversu lengi mun deildin lifa lengur? 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan