Fimmtudaginn 30. nóvember kl. 16:30 verður sögustundin með afar notalegu sniði. Þá er öllum velkomið að mæta í náttfötum eða kósífötum hingað á safnið. Slökum á og lokum jafnvel augum á meðan Svala Hrönn Sveinsdóttir bókavörður les fyrir okkur fallegar sögur. Að sögustund lokinni verður boðið upp á föndur eða litablöð.
Gerum veturinn notanlegan - sjáumst :)
Amtsbókasafnið er á Facebook og Instagram.