Amtsbókasafnið leitast sífellt við að koma betur til móts við þarfir íbúa og gesta. Nú hefur safnið hafið útlán á kökuformum. Formin eru alls sautján og má sjá hér á meðfylgjandi mynd. Það er einnig hægt að skoða formin á 1. hæð safnsins, við hliðina á matreiðslubókunum. Formin lánast út líkt og bækur í 30 daga. Þess má geta að enn er tekið við formum ef fólk vill gefa safninu.
Verið velkomin á Amtsbókasafnið!
Sjá lista yfir óhefðundinn safnkost hér.
Sjá yfirlit yfir viðburði á næstunni hér.