Kósý klippismiðja (opin smiðja)

Er sumarlokun á leikskólanum, rigning úti og barnið við það að borða seríós úr stígvélinu sínu?

Dagana 20.-24. júlí kl. 16:30-18:30 eru allir velkomnir í kósý klippismiðju á Amtsbókasafninu. Á staðnum verða afskrifuð tímarit og bækur ásamt skærum, límstiftum og lituðum blöðum.

Gefið ímyndunaraflinu lausan tauminn og skapið afmæliskort, veggspjald, bókamerki eða bara ykkar eigin heim!

Á Amtsbókasafninu er einnig hægt að spila, leigja mynddiska, lita, fá sér kríu og að sjálfsögðu skoða fullt af skemmtilegum bókum!

Verið hjartanlega velkomin!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan