Kæra foldin kennd við snjó - Málþing um Káin

Kristján Níels Júlíus Jónsson. Káinn.
Kristján Níels Júlíus Jónsson. Káinn.
Þjóðræknisfélag Íslendinga, í samvinnu við Amtsbókasafnið á Akureyri og Háskólann á Akureyri, býður til málþings um Akureyringinn Káin, Kristján Níels Júlíus Jónsson, í hátíðarsal Háskólans laugardaginn 26. ágúst 2017.
 
Mér er eins og öðrum fleiri, 

ættjörð týnd og gleymd, 
samt er gamla Akureyri, 
enn í huga geymd. 

                        Káinn

DAGSKRÁ 26. 08. 17 

 
10.00-12.30 Káinn og vesturferðirnar

Fundarstjóri: Kristinn Már Torfason

Gestgjafi: Sigrún Stefánsdóttir, formaður afmælisnefndar Háskólans á Akureyri.

Ávarp: Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri Akureyrar.

Setning: Hjálmar W. Hannesson, formaður Þjóðræknisfélags Íslendinga.

Mæðginin Eleanor Geir Biliske og Ed Biliske ávarpa ráðstefnugesti. Þess er skylt að geta að Eleanor er sennilega eina núlifandi manneskjan, vestan hafs og austan, er hafði persónuleg kynni af Káin. Erindi sitt nefna þau: KN Julius The Poet with calloused hands- Life on the Geir Farm.

Tónlist: Vandræðaskáldin, Sesselía Ólafsdóttir og Vilhjálmur Bergmann

Jón Hjaltason sagnfræðingur: Af hverju landflótti til Vesturheims?

Jónas Þór sagnfræðingur: Norðuramerískt samfélag – íslensk aðlögun.

Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur: Pegasus í fjósinu og kýrrassatrú. Var Káinn skáld eða hagyrðingur?


12.30-13.15 Matarhlé

Hægt verður að kaupa veitingar frá Norðurlyst


13.15-15.00 Ljóð Káins

Fundarstjóri: Hólmkell Hreinsson

Böðvar Guðmundsson rithöfundur: Minn Káinn.

Hulda Karen Daníelsdóttir, verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg: 
K. N. í Lögbergi Heimskringlu á árunum 1990-1992.

Helgi Freyr Hafþórsson, verkefnastjóri við HA: Frá K til N: Frá Káin til nútímans.

Tónlist: Baggalútur


15-15.20 Kaffiveitingar


15.20-16.40 Káinn í samtímanum

Fundarstjóri: Kristín Margrét Jóhannsdóttir

Egill Helgason dagskrárgerðarmaður: Káinn settur í sjónvarp.

Sunna Pam Furstenau, forseti Icelandic Roots og forseti Þjóðræknisfélags Íslendinga í 
Norður-Ameríku: Káinn's Thingvalla - Connections, Celebrations, and Community.

Bragi Valdimar Skúlason: Stína og Stjáni.


16.40 Slit

Kristín Margrét Jóhannsdóttir

Ókeypis er inn á málþingið - Allir velkomnir!

 

Kæru gestir, hafið hugfast að eftir slit málþingsins, mun bæjarstjóri Akureyrar veita móttöku minnisvarða um Káin sem er gjöf frá Icelandic Roots, The Icelandic Communities Association of NE North-Dakota og frá velunnurum Káins.

 

Styrktaraðilar: Akureyrarbær Icelandair KEA Kjarnafæði Utanríkisráðuneytið Norðurorka Mennta- og menningarmálaráðuneytið.

 

Facebook-síða málþingsins

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan