Jólapeysan 2019

Mánudaginn 9. desember kl. 17:00 hleypum við anda jólanna í hjörtu okkar með jólapeysuföndri.

Fyrirkomulag: Til sölu verða peysur frá Rauða krossinum á 500 krónur stykkið sem renna beint til samtakanna. Ath. ENGINN POSI á staðnum!

Athugið! Töluvert af gömlu jólaskrauti, til að skreyta peysurnar með, verður á staðnum. En ef þú vilt losa þig við jólaskraut þá er allt slíkt vel þegið í föndrið. Meira er betra!

Styrkjum gott málefni, endurvinnum, hlustum á jólalög og föndrum saman jólapeysur! Notaleg samverustund á aðventunni.

Viðburðurinn fer fram á Orðkaffi sem er opið til kl. 17:00. Því er gott að mæta tímanlega ef panta skal kaffi og meððí

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan