Íslensku bókmenntaverðlaunin og Blóðdropinn

Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna þetta árið, sem og glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans, voru tilkynntar þann 1. desember sl.

Nær allar þessar tuttugu bækur eru til útláns hjá okkur og ef þær eru í útláni, þá er alltaf hægt að panta.

Um leið og við óskum hinum tilnefndu innilega til hamingju, þá minnum við á að afgreiðslutími Amtsbókasafnsins er 8:15-19:00 alla virka daga og 11:00-16:00 á laugardögum. Og fram til 15. desember er kvöldopnun á þriðjudögum og fimmtudögum (til 22:00). Sjálfsafgreiðsla er 8:15-10:00 og 19:00-22:00.

Og það er auðvitað hægt að panta með því að koma hingað, með því að hringja í okkur eða með því að fara inn á amt.leitir.is og panta þar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan