Heill þér mæta, merka kona

100 ára kosningaréttur kvenna á Íslandi
100 ára kosningaréttur kvenna á Íslandi

Sýning Héraðsskjalasafnsins á Akureyri í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna á Íslandi er opin allan júnímánuð.

merka kona

Ávarpið í heiti sýningarinnar gæti átt við mjög margar konur, en það er sótt í ljóð sem Elísabet Geirmundsdóttir listakona orti til Elísabetar Eiríksdóttur, kennara og bæjarfulltrúa, sextugrar.

Sýningin byggist á skjölum sem varðveitt eru í Héraðsskjalasafninu á Akureyri og er þar um að ræða frumskjöl sem varða kosningar, kvennabaráttu, kvenfélög, kvennaklúbba og einstakar konur, þ.e.a.s. kvennaskjöl í víðasta skilningi þess orðs. 

Minnst verður sérstaklega Vilhelmínu Lever sem fyrst kvenna á Íslandi kaus til bæjarstjórnar árið 1863. Þess má geta að önnur kona, Kristbjörg Þórðardóttir, var þá einnig á kjörskrá en nýtti sér ekki „kosningaréttinn“ sem reyndar var ekki óyggjandi.

Einnig verður minnst þeirra þriggja kvenna sem fyrstar tóku sæti í bæjarstjórn Akureyrar. Það voru þær Kristín Eggertsdóttir kjörin 1911 og sat í 3 ár, Halldóra Bjarnadóttir árið 1921 og sat í 1 ár og áðurnefnd Elísabet Eiríksdóttir, sem tók þar sæti 1927 og sat alls í 19 ár.

Á sýningunni eru sendibréf, dagbækur, fundargerðabækur, fálkaorðuskjal, heiðursborgaraskjal, meðmælendalistar til framboðs, ræða þingmanns og margt fleira sem of langt væri upp að telja.

Þarna má einnig sjá lista yfir konur í sveitarstjórnum við Eyjafjörð, lista yfir þingkonur Norðurlandskjördæmis eystra og Norðausturkjördæmis auk yfirlits í tímaröð yfir áfanga í sögu kvenna og brautryðjenda við Eyjafjörð. 

Sýningin er opin alla virka daga í júní kl. 10:00 – 19:00 í Brekkugötu 17, húsi Amtsbókasafns og Héraðsskjalasafns. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan