Allt á uppleið hjá leitir.is
Starfsfólk Landskerfa hefur að undanförnu unnið hörðum höndum að því að betrumbæta öryggi á vefsíðunni
leitir.is. Hér að neðan má lesa hvernig gengur:
- Innskráning: nokkuð hafði borið á villum við innskráningu en þær heyra nú sögunni til.
- „Hafðu samband“ eyðublaðið: var fjarlægt af forsíðunni vegna öryggismála.
- Settur var inn tengillinn „Hafðu samband við þitt bókasafn“ neðst á síðunni til leiðsagnar fyrir lánþega.
Allt er því á uppleið hjá leitir.is.