Gleðileg jól!!!

Elsku safngestir! Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri óskar ykkur öllum gleðilegra jóla!

Það er opið á Þorláksmessu til 19:00, eins og venjulega. Svo kemur þriggja daga jólahelgi og við opnum aftur kát og pattaraleg, þriðjudaginn 27. desember kl. 8:15.

Hefðbundinn afgreiðslutími er dagana 27.-30. desember (8:15-19:00, sjálfsafgreiðsla til 10:00).

Svo tekur við áramótahelgin 31. desember og 1. janúar ... þá verður lokað. Við sjáumst svo hress og upptendruð aftur þann 2. janúar.

(psst... engar áhyggjur, við minnum ykkur á afgreiðslutímann aftur milli jóla og nýárs)

Hafið það yndislegt um jólin!

GLEÐILEG JÓL!!

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan