Föstudagsþraut : hið mennska orðarugl!!

Föstudagur og Akureyrarvaka framundan. Hluti af henni er hið mennska bókasafn og því tilvalið að þraut dagsins skuli tengjast því! Gjörið svo vel: hið mennska orðarugl!

Hér fyrir neðan eru mennsku bókatitlarnir sex sem verða að láni á hinu mennska bókasafni frá 13:00-16:00 á morgun, laugardag 27. ágúst, í tengslum við Akureyrarvöku.

Tveir titlanna hafa áður verið í útláni hjá okkur, en fjórir eru glænýir.

- hygkventíðni
- traðalfótum
- keygsinn
- greynislúti
- árieldaði
- dofrirel snart snarb

* Ef þið raðið rétt úr orðaruglinu, þá getið þið séð titlana sex sem verða að láni hjá okkur.

Mætið á staðinn og biðjið um þá mennsku bók sem vekur mestan áhuga ykkar! Ef viðkomandi bók er í útláni þegar þið komið getið þið farið á biðlista og jafnvel lesið aðra á meðan þið bíðið.

Frítt inn og allir velkomnir!!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan