Sýningin Fríða og dýrið

Sýningin Fríða og dýrið verður opnuð á Amtsbókasafninu á Akureyrarvöku, laugardaginn 31. ágúst kl. 14:00. Á sýningunni gefur að líta klippimyndir og stafrænar ljósmyndir eftir franska listamannin Michel Santacroce. Sýningin mun standa út september.

Sagan um Fríðu og dýrið er ævagömul, eina af fyrstu þekktu útgáfum hennar má finna í bókum gríska rithöfundarins Apuleiusar, sem uppi var á 2. öld eftir Krist, nánar tiltekið í sögunni Eros og Psyche - ást og andi.

Í verkum sínum veltir Santacroce fyrir sér hvernig ljótleiki og fegurð eru samtvinnuð í okkur öllum, í raun er erfitt að greina eitt frá öðru. Við erum dæmd til að bera í okkur andstæðurnar og glíma við þær.

Michel Santacroce er fæddur í Marseille í Frakklandi, hann er málvísindamaður að mennt, hefur yndi af orðum og endalausum samsetningarmöguleikum þeirra. Frá orði til myndar er aðeins eitt skref, sem Santacroce tók ungur, þegar hann hóf að stunda klippimyndalist á áttunda áratugnum. Santacroce bjó hér á landi í nokkur ár og hefur haldið sterkum tengslum við land og þjóð.

Verið hjartanlega velkomin!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan