Bókmenntahátíðin í Reykjavík hefst á Akureyri

Það verður fjör í apríl!
Það verður fjör í apríl!

Bókmenntahátiðin í Reykjavík þjófstartar á Akureyri í Menningarhúsinu Hofi líkt og árið 2017. Bókmenntadagskráin í Hofi verður haldin dagana 23. og 24 apríl, með þátttöku erlendra og innlendra höfunda auk lesenda. Nánari dagskrá verður kynnt síðar en hún er samstarf Menningarfélags Akureyrar, Bókmenntahátíðarnnar í Reykjavík og Amtsbókasafnsins á Akureyri.

Alþjóðlega bókmenntahátíðin í Reykjavík verður haldin dagana 24.-27. apríl í Norræna húsinu og í Iðnó. Hún er í ár í fyrsta skipti að vori og urðu dagarnir í lok apríl eftir Dag bókarinnar fyrir valinu. Á þessum tíma er mikill blómi í bókaútgáfu og vorbækurnar streyma úr prentsmiðjum, bæði íslenskar og erlendar.

„Við hlökkum mikið til Bókmenntahátíðarinnar hér í Hofi og gerum okkur vonir um að áhugafólk um bókmenntir á Akureyri og nærsveitum fjölmenni, taki þátt og njóti þeirrar dagskrár sem við erum að setja saman. Við munum fljótlega láta vita hér hvaða höfundar koma norður svo allir geti nálgast bækur þeirra og hafið lesturinn,“ segir Kristín Sóley Björnsdóttir viðburðastjóri Menningarfélags Akureyrar og verkefnastjóri Bókmenntahátíðardagskrárinnar á Akureyri.

Til landsins koma höfundar frá fjölmörgum löndum en verk margra þeirra hafa verið eða verða gefin út á Íslandi í tilefni af hátíðinni. Í ár litast hátíðin meðal annars af því að hundrað ár eru frá því að fyrsta skáldsaga Halldórs Laxness kom út og verður efnt til alþjóðlegs málþings af því tilefni. Þá verða heiðursverðlaun þýðenda af íslenku á erlend mál veitt í þriðja sinn. Að venju verða upplestrar, umræður og fyrirlestrar og er aðgangur ókeypis á alla viðburði og allir velkomnir.

Bókmenntahátíð í Reykjavík nýtur stuðnings Mennta- og menningarmálaráðuneytis, Reykjavíkur Bókmenntaborgar Unesco, Norræna hússins, Félags íslenskra bókaútgefenda og Miðstöðvar íslenskra bókmennta. Þá sækir hátíðin styrki í ýmsa sjóði, og á í samstarfi við fjölmargar stofnanir og félög.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan