Bækurnar Lífsgildi

Á fyrstu árum ævinnar læra börn hratt og mikið. Áhrif umhverfisins á nám barna eru mikil og fyrirmyn…
Á fyrstu árum ævinnar læra börn hratt og mikið. Áhrif umhverfisins á nám barna eru mikil og fyrirmyndir spila stórt hlutverk.

Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir leikskólakennari og höfundur bókanna Lífsgildi verður á Orðakaffi, sem staðsett er á 1. hæð Amtsbókasafnsins, fimmtudaginn 4. október kl. 17-18. Hægt verður að glugga í bækurnar og spyrjast fyrir um efni þeirra. 

Bækurnar fjalla um lífsgildi sem henta börnum sem eru yngri en þriggja ára.

Á fyrstu árum ævinnar læra börn hratt og mikið. Áhrif umhverfisins á nám barna eru mikil og fyrirmyndir spila stórt hlutverk. Börnin vilja oft endurtekningu á sama hlutnum eða sama efninu. Lestur bóka er þar engin undantekning. Bækur verða fljótt hluti af daglegri rútínu, undirbúningi fyrir svefn, leik eða notalegri stund. Bækur eru bæði nýttar til yndislesturs og sem námsefni.

Fjallað er um lífsgildi og dygðir sem henta yngstu börnum leikskólans og sem eflir siðvit barnanna og hjálpar þeim að verða betri einstaklingar.

Allir eru velkomnir!

 

Lífsgildi á Facebook

 
Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan