Útlánabomba

Gaman er að segja frá því að heildarútlán fyrir janúar 2019 voru 13.971 og er það aukning um 1.277 (10%) milli ára. Útlán á bókum voru 10.524 og er það aukning um 5% á milli ára. Útlán á spilum jukust um 185% á milli ára. Gjaldtöku fyrir DVD var hætt um áramót og við það jukust útlánin á mynddiskum og munar þar um 91% miðað við janúar 2018. Útlán á tímaritum jukust um 20%, útlánum á bókum í gegnum Rafbókasafnið fjölgaði um 16% og þess má einnig geta að gestum fjölgaði um 7% á milli ára. 

Allt seinasta ár fjölgaði gestum og útlánum á Amtsbókasafninu lítillega en þó nokkuð stöðugt á milli ára. Er það í fyrsta sinn síðan árið 2014 sem gestakomum og útlánum hefur fjölgað. 

Á Amtsbókasafninu fer fram ýmiskonar starfsemi og fjölþætt þjónusta. Auk þess sem gestir sækja sér gögn af ýmsu tagi þá stendur safnið fyrir viðburðum margskonar, sýningum, erindum og upplestrum svo dæmi séu tekin.

Hefur þú litið á viðburðadagatal Amtsbókasafsnins

Svo má einnig skoða viðburði á Facebook.

 Verið ávallt velkomin á Amtsbókasafnið á Akureyri!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan