Amtsbókasafnið á Akureyri: Barnabókavörður

Akureyri - Hlutastarf
Umsóknarfrestur: 18.07.2021

Amtsbókasafnið á Akureyri óskar að ráða barnabókavörð í 75% starf frá og með 1. ágúst 2021.

Helstu verkefni eru:
Þjónusta við börn og ungt fólk, s.s. með sögustundum, sumarlestri og öðrum viðburðum.
Samstarf við leik- og grunnskóla á Akureyri og aðra þá sem starfa með börnum og ungmennum.
Samstarf við aðrar stofnanir og fyrirtæki að lestrarhvetjandi verkefnum.

Menntunar/Hæfniskröfur:
Háskólapróf á sviði uppeldis- og kennslufræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Lipurð í samskiptum og rík þjónustulund.
Jákvæðni og sveigjanleiki.

Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigrún Ingimarsdóttir í síma 460-1254 eða í netfangi: sigruni@amtsbok.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is

Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í Þjónustuveri Akureyrarbæjar Geislagötu 9.

Umsóknarfrestur er til og með 18. júlí 2021

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan