Áminning: skertur afgreiðslutími 29.-30. ágúst!

Kæru safngestir! Við minnum ykkar á að mánudaginn 29. ágúst nk. og þriðjudaginn 30. ágúst verður afgreiðslutími Amtsbókasafnsins í styttra lagi, eða frá 16:00 til 19:00! Þetta er gert vegna stefnumótunarvinnu safnsins.

Við höfum verið með skoðanakannanir í gangi og viðtöl. Í samráði við danska kollega okkar og sérfræðinga munum við nýta okkur það sem við lásum og heyrðum frá ykkur og nýta það þessa tvo daga í ákveðinni vinnu. Niðurstaðan verður því skýrari stefna og starfsemi Amtsbókasafnsins ... lengi má gott bæta, ekki satt?

Kærar þakkir fyrir skilninginn og þolinmæðina!
- starfsfólk Amtsbókasafnsins

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan