Alþjóðlegir þriðjudagar: La Réunion

La Réunion
La Réunion

(ENGLISH BELOW)

Þriðjudaginn 7. ágúst kl. 17:00 mun Alexandra Zaglewski, sem búsett hefur verið hér á Akureyri um skeið, kynna heimaslóðir sínar eyjuna La Réunion, sem er sannkallaður suðupottur menningar! 

NOKKRIR PUNKTAR UM LA RÉUNION:

La Réunion er frönsk nýlenda í Indlandshafi, milli Evrópu, Afríku og Asíu. Austan við Madagaskar (175 km) og suðvestan við Mauritius. Íbúar eyjunnar eru 865,826 þúsund talsins. 

Á eyjunni er eldfjallið Piton de la Fournaise sem gosið hefur oftar en 100 sinnum síðan árið 1640. 

Menningaráhrifin berast víða að, frá Afríku, Evrópu, Kína og Indlandi. Þau áhrif endurspeglast meðal annars í fjölbreyttri matargerð. 

Viltu vita meira? Mættu þá á Amtsbókasafnið þriðjudaginn 7. ágúst kl. 17:00 ;) 

Kynning þessi er hluti af viðburðaröð sem fer fram undir heitinu Alþjóðlegir þriðjudagar, í tengslum við Listasumar. Alla þriðjudaga í sumar á tímabilinu 26. júní-21. ágúst kl. 17:00 munu íbúar af erlendum uppruna kynna heimaland sitt á Amtsbókasafninu. Markmiðið með alþjóðlegum þriðjudögum er að færa ólíka menningarheima saman, rjúfa einangrun og vekja athygli á heiminum í kringum okkur.

-----------

Tuesday, the 7th of August at 5pm Alexandra Zaglewski will talk about her roots in La Réunion.

This event is a part of series called International Tuesdays. Every tuesday in the period 26th of June - 21st of August at 5PM here at the library inhabitants from abroad will talk about where they come from.Food, music, language, landscape, culture,... etc. 

The aim is to create beautiful events, a gateway into different cultures which could arouse the curiosity of the citizens of the world around us.

Welcome!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan