Alþjóðlegir þriðjudagar | Filippseyjar

Fallegt á Filippseyjum.
Fallegt á Filippseyjum.

(ENGLISH BELOW)

Þriðjudaginn 10. júlí kl. 17:00 mun Rosanna Eydís Araojo sem búsett hefur verið hér á Akureyri um skeið, kynna heimaland sitt Filippseyjar. 

- Vissir þú að Filippseyjar framleiða og flytja út fleiri kókoshnetur en nokkuð annað land í heiminum?
- Vissir þú að verslunarmiðstöðvar eru mjög vinsælir staðir á Filippseyjum? Þær eru hreinar, öruggar og loftkældar. Í verslunarmiðstöðvunum eru ekki aðeins verslanir og veitingastaðir heldur líka heilsugæslustöðvar, garðar og jafnvel kirkjur. Þrjár af tíu stærstu verslunarmiðstöðvum í heiminum eru á Filippseyjum. 
- Vissir þú að á Filippseyjum þykir það vera ókurteisi að opna gjafir strax eftir að viðkomandi hefur þegið þær?

Þetta allt og meira til þriðjudaginn 10. júlí kl. 17:00.

Verið velkomin! 

Kynning þessi er hluti af viðburðaröð fer fram undir heitinu Alþjóðlegir þriðjudagar í tengslum við Listasumar. Alla þriðjudaga í sumar á tímabilinu 26. júní-21. ágúst kl. 17:00 munu íbúar af erlendum uppruna kynna heimaland sitt á Amtsbókasafninu. Markmiðið með alþjóðlegum þriðjudögum er að færa ólíka menningarheima saman, rjúfa einangrun og vekja athygli á heiminum í kringum okkur.

-----------

Next tuesday, the 10thof July at 5 pm Rosanna Eydís Araojo will talk about her homeland The Philippines.

- The Philippines produces and exports more coconuts than any country in the world, shipping off about 19.5 million tons of the fruit (called “buko”) every year.

- Did you know that shopping malls are exstremely popular in The Philippines! In fact, they serve as community hubs since they’re clean, safe, and, most importantly, air-conditioned. Aside from the usual stores they also have countless food venues, gyms, grocery stores, banks, health clinics, nightclubs, parks, concert amphitheaters, and even churches inside their malls.
- Did you know that according to Filipino custom, it is considered rude to open gifts immediately after they are given.

This event is a part of series called International Tuesdays. Every tuesday in the period 26th of June - 21st of August at 5 pm here at the library inhabitants from abroad will talk about where they come from. Food, music, language, landscape, culture,... etc. 

The aim is to create beautiful events, a gateway into different cultures which could arouse the curiosity of the citizens of the world around us.

Welcome!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan