Akureyrarvaka: Kvikmyndasýning á Amtsbókasafninu

Kvikmyndasýning á Amtsbókasafninu á Akureyrarvöku
Kvikmyndasýning á Amtsbókasafninu á Akureyrarvöku

LAUGARDAGINN 26. SEPTEMBER KL. 14-17 VERÐA SÝNDAR KVIKMYNDIR Á AMTSBÓKASAFNINU, SEM PARTUR AF AKUREYRARVÖKU.

Myndirnar sem sýndar verða:

Zathura: A Space Adventure (97 mín.):

“Þrusu spennandi sci-fi mynd um tvo bræður sem lenda úti í geim eftir að hafa spilað leyndardómsfullt spil í kjallara gamals hús sem þeir búa í. Á ferð sinni um geiminn rekast þeir á geimfara, geimverur og þurfa að lifa af loftsteinaregn. Ef þeir ná ekki að klára “spilið“ og finna plánetuna Zathura, gætu þeir orðið fastir i geimnum að eilífu.“

Nanny McPhee (94 mín.):

“Í þessari drungalegu en fyndnu dæmisögu leikur Emma Thompson konu sem er skelfileg á að líta og er gædd töframætti. Ekkillinn herra Brown ræður hana til starfa til að reyna að temja óþekku börnin hans sjö. Börnin hafa hrakið sautján barnfóstrur í burtu en þegar McPhee tekur við komast þau að því að andstyggileg hegðun þeirra hefur snöggar og óvæntar afleiðingar.“

Báðar myndirnar eru leyfðar fyrir alla aldurshópa og eru með íslenskum texta. 

Myndirnar verða sýndar uppi á 2. hæð. hjá útganginum sem snýr í vestur.

Safnið verður allt opið á meðan viðburður stendur yfir.

KOMIÐ OG NJÓTIÐ! 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan