Áhugamál

Áhugamál okkar eru mörg og ólík. En við höfum þó tekið saman rit í nokkrum flokkum og sett í rekka sem við nefnum „Áhugamál“.

Þarna má finna allt milli himins og jarðar, eins og bækur um heimili (innanhússhönnun, innanhússkreytingar o.fl.), teiknun, skreytilist, tré, málun ...

Endilega látið ekki þessa gullmola framhjá ykkur fara, því með því að kíkja á þennan safnkost má gera ráð fyrir því að sköpunargáfa verði leyst úr læðingi, vandamál um röðun húsgagna leyst, svarið við „Hvernig á að teikna þetta og hitt?“ kemur í ljós og úrklippur öðlast nýtt líf.

Áramótaskaup okkar Íslendinga hefur meira að segja gert höfundi bóka í þessum rekka ákveðin skil.

Ertu ekki á leiðinni hingað?

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan