13.feb

Spilaklúbbur Amtsbókasafnsins

Spilaklúbbur Amtsbókasafnsins

Spilaklúbbur Amtsbókasafnsins er ætlaður krökkum á aldrinum 9 – 14 ára. Hópurinn hittist á kaffiteríu bókasafnsins kl. 17-18 annan hvern mánudag yfir vetrartímann og spilar hin ýmsu borðspil. Ekki þarf að skrá sig í klúbbinn, nóg er að mæta á staðinn.

Hrönn Björgvinsdóttir heldur utan um spilahópinn, hægt er að senda fyrirspurninir á hana á netfangið hronnb@amtsbok.is.

Foreldrar og forráðamenn geta fylgst með starfi klúbbsins í sérstökum facebook-hóp.