11.maí

Spilaklúbbur 9-13 ára

Spilaklúbbur 9-13 ára

Yfir vetrartímann er starfræktur spilaklúbbur á Amtsbókasafninu fyrir börn á aldrinum 9-13 ára. Klúbburinn hittist á kaffihúsi safnsins, Orðakaffi, aðra hverja viku. Hrönn Björgvinsdóttir, leiðir hópinn.

Allir krakkar á aldrinum 9-13 ára eru hjartanlega velkomnir! Ekkert þátttökugjald.
Engin þörf er á að skrá sig fyrirfram, nóg er að mæta á staðinn.

Foreldrar og forráðamenn geta fylgst með starfi spilaklúbbsins í hóp á Facebook. Nánari upplýsingar veitir Hrönn á netfanginu: hronnb@amtsbok.is