3.okt

Barnamenningarhátíð | Ritlistasmiðja fyrir 6-12 ára

Barnamenningarhátíð | Ritlistasmiðja fyrir 6-12 ára
Í tilefni barnamenningarhátíðar á Akureyri býður Amtsbókasafnið börnum á aldrinum 6-12 ára upp á ritlistasmiðju með Vilhjálmi B. Bragasyni, leikskáldi, textahöfundi og tónlistarmanni. Ristlistasmiðjan fer fram á Amtsbókasafninu laugardaginn 3. október frá kl. 13-15. Þátttaka er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá börnin.
Skráning sendist á hronnb@amtsbok.is þar þurfa að koma fram upplýsingar um nafn og aldur barnsins auk símanúmers forráðamanns.
 
Vilhjálmur B. Bragason nam leikritun og leikbókmenntir við Royal Academy of Dramatic Arts í London og úskrifaðist með MA gráðu vorið 2015. Hann hefur skrifað fjögur leikrit í fullri lengd og hlaut m.a. Nýræktarstyrk miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir leikverk sitt Afhendingu, en það er fyrsta leikverkið til þess að hljóta þann heiður. Auk þess hefur hann skrifað fjölda verka í samstarfi við aðra, bæði í Bretlandi og hér heima, nú síðast Galdragáttina og þjóðsöguna sem gleymdist og Framhjá rauða húsinu og niður stigann með Umskiptingum. Þá hefur Vilhjálmur þýtt og aðlagað verk eftir aðra, til að mynda Sjeikspír eins og hann leggur sig fyrir Leikfélag Akureyrar. Vilhjálmur er einnig skemmtikraftur og tónlistarmaður og sem slíkur er hann annar helmingur Vandræðaskálda.
 
ATH takmarkaður fjöldi þátttakenda: 15 börn.
 
Ritlistarsmiðjan er haldin í tengslum við Barnamenningarhátíð á Akureyri sem fer fram í október. Viðburðurinn nýtur stuðnings Akureyrarbæjar.
Myllumerki Barnamenningarhátíðar á Akureyri er #barnamenningak