Upplýsingar um viðburð
Langar þig til að prjóna, hekla, sauma og spjalla í góðum félgsskap?
Í haust mun Amtsbókasafnið halda áfram með handavinnuklúbb, sem öllum er velkomið að taka þátt í, hvort sem um ræðir eitt skipti eða öll.
Klúbburinn mun hittast á kaffihúsi safnsins, Orðakaffi, annan hvern miðvikudag kl. 16:30-18:30. Svala Hrönn Sveinsdóttir, bókavörður, verður á staðnum. Athugið, ekki er um kennslu í handavinnu að ræða, heldur er frekar lögð áhersla á góðan félagsskap og að hópurinn hjálpist að innbyrðis. Allir eru velkomnir með prjóna, heklunálar og aðra handavinnu.
Engin þörf er á að skrá sig í hópinn, nóg er að mæta á staðinn. Nánari upplýsingar veitir Svala á netfanginu svala@akureyri.is
Handavinnuklúbburinn er á Facebook.
Prjóna''fundir'' verða á eftirfarandi dögum:
- 11. september
- 25. september
- 9. október
- 23. október
- 6. nóvember
- 20. nóvember
- 4. desember
- 18. desember
Allir hjartanlega velkomnir!