18.jan

Mennska bókasafnið

Mennska bókasafnið

Það er ómetanlegt að geta miðlað mismunandi reynsluheimum í formi samtals.

Þann 18. janúar næstkomandi ætlum við að halda viðburð á Amtsbókasafninu þar sem lánaðar verða út Mennskar bækur.

Á hinu Mennska bókasafni gefst tækifæri til þess að spjalla í um hálftíma við einstaklinga sem standa frammi fyrir ólíkum og mögulega mjög framandi áskorunum og heyra þeirra hlið í þeirra eigin orðum.

Fyrsta Mennska bókasafnið opnaði í Danmörku árið 2000 og síðan þá hafa viðburðir á vegum þeirra farið fram í 85 löndum.

Dæmi um bókatitla sem hafa verið á viðburðum úti í heimi eru til dæmis:
ADHD, Óvirkur alkóhólisti, Kulnun.

Viltu komast að því hvaða mennsku bækur verða í boði?

Kíktu á Amtsbókasafnið á bilinu 12:30 - 15:30 laugardaginn 18. janúar!

Þar verðum við með bókalista í anddyrinu og þið getið tekið frá þá titla sem þið eruð spenntust fyrir ef þeir eru þegar í útláni þegar þið komið.

Fyrstir koma, fyrstir fá!

Enginn aðgangseyrir!

Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá safninu.
Mennska bókasafnið er styrkt af sóknaráætlun SSNE