26.jan

Laugardags-sögustund | Bókin Gallsteinar afa Gissa og origami

Laugardags-sögustund | Bókin Gallsteinar afa Gissa og origami

Laugardaginn 26. janúar, kl. 13.15 verður lesið úr bókinni Gallsteinar afa Gissa eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur. Torfi og Gríma búa við fyrstu sýn á ósköp venjulegu heimili, en ekki er allt sem sýnist. Mamma þeirra er stjórnsamur skipanaforingi. Pabbinn er viðutan vinnusjúklingur. Bróðirinn er ótemjandi unglingaskrímsli. Systkinin dreymir um afslappað heimilislíf, gæludýr og gotterí. Þau langar að flytja til afa Gissa en skyndilega fær afi Gissi gallsteinakast sem hefur afdrifaríkar afleiðingar fyrir Torfa og Grímu. Þess má geta að Menningarfélag Akureyrar byrjar að sýna leikrit byggt á bókinni í febrúar.

Eftir upplestur úr bókinni verður ORIGAMI föndur undir handleiðslu Helgu og Fríðu. 

Gerum veturinn notanlegan - sjáumst :)