9.sep

Hnotan – Handavinnuklúbbur Amtsbókasafnsins - fyrsti hittingur haustsins

Hnotan – Handavinnuklúbbur Amtsbókasafnsins - fyrsti hittingur haustsins

Það er komið að fyrsta hittingi Hnotunnar – handavinnuklúbbs Amtsbókasafnsins þetta haustið.


Við hittumst á Orðakaffi, á Amtsbókasafninu, þar sem er upplagt að fá sér kaffi og köku til að njóta með handavinnunni.


Öll eru velkomin, hvort sem er með prjóna, heklunálar eða hvers kyns handavinnu.


Hvert og eitt kemur með efni og verkfæri að heiman.


Komum saman og eigum huggulega handavinnustund í góðum félagsskap.