15.des

Hjörleifur Hjartarson kynnir bókina FUGLAR

Hjörleifur Hjartarson kynnir bókina FUGLAR

Föstudaginn 15. desember kl. 17:00 mun Hjörleifur Hjartarson kynna bókina FUGLAR. 

Texti fenginn frá forlagi:

''Varúð!

Þetta er ekki góð fuglagreiningarbók. Fuglarnir í henni eru illa teiknaðir og textinn fullur af fordómum og tilgerð. Vert er að hafa það í huga við lesturinn. Hafir þú hins vegar áhuga á krassandi sögum af áhættusækni, skrautfíkn og ástarlífi íslenskra fugla, og hvers kyns sérvisku sem tengist þeim, þá er þetta rétta bókin fyrir þig.

Falleg bók um íslenska fugla fyrir alla fjölskylduna. Spéfuglarnir Hjörleifur Hjartarson og Rán Flygenring draga fram helstu sérkenni fuglanna í máli og myndum án þess að taka sig of alvarlega og niðurstað er einstök og óvenjuleg en um leið fræðandi bók um íslenska fugla.''

Höfundar: Hjörleifur Hjartarson, Rán Flygenring

 

Amtsbókasafnið er á Facebook og Instagram